Við höfum til leigu 3 sumarhús á skemmtilegum stað í Ölfusinu undir hlíðum Ingólfsfjalls. Húsin eru öll vel búin með fallegu útsýni yfir sveitina. Nærri allri þjónustu en þó í kyrrð og næði sveitarinnar.
Hús og búnaður:
Húsin eru 54m² með 26m² svefnlofti. Þau skiptist í tvö svefnherbergi annað með hjónarúmi og hitt kojum. Auk þess er svefnloft með dýnum. Niðri er stofa, eldhús með borðkróki og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss, sængur og koddar eru fyrir 8. Bústaðurinn er með interneti gegn gjaldi. Ekki er séð fyrir sængurverum. Við bústaðinn er heitur pottur og stór verönd með húsgögnum og gasgrilli.
Takið með ykkur:
Lín, handklæði, diskaþurrkur og borðklúta.
2 svefnherbergi og 1 svefnloft
Svefnpláss fyrir 8 manns
Stór verönd með húsgögnum
Gasgrill
Sturta
Internet (gegn gjaldi)
Heitur pottur
Umgengni og frágangur:
Leigjandi skal ganga vel um og ræsta húsið við brottför. Ræstingaráhöld/vörur eru í húsinu. Hægt er að kaupa þessa þjónustu af eigendum.
Gæludýr:
Leyfilegt er að hafa með sér heimilisdýr í húsinu en gæta verður að hreinlæti.
Umsjónarmaður:
Guðmundur Ingvarsson (Akurgerði II)
Sími 483 4449 / 893 9814
Afhending lykla:
Lyklar eru afhentir í Akurgerði II
Sími 483 4449 / 893 9814